Körfubolti

Keflavík tvöfaldur meistari

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Keflvíkingar fögnuðu sigri í dag.
Keflvíkingar fögnuðu sigri í dag.

Keflavík fagnaði tvöföldum sigri í Meistarakeppni KKÍ í dag. Karlaliðið vann sigur á Snæfelli, 77-73.

Fyrr í dag vann kvennalið Keflavíkur sigur á Grindavík. Leikurinn í dag var nokkuð kaflaskiptur en bæði lið skiptust á að vinna tvo leikhluta.

Keflavík hafði yfirhöndina eftir fyrsta leikhluta, 18-13, en Snæfellingar létu til sín taka í þeim öðrum og höfðu yfirhöndina í hálfleik, 38-37.

Keflvíkingar náðu átta stiga forystu eftir þriðja leikhluta og dugði það til að tryggja sigurinn í leiknum þó svo að Snæfellingar hafi náð að minnka muninn í fjögur stig.

Sigurður Þorsteinsson skoraði átján stig fyrir Keflavík og hitti úr sex af sjö skotum sínum utan af velli. Hörður Axel Vilhjálmsson var með fimmtán stig og Sverrir Sverrisson fjórtán.

Sigurður Þorvaldsson skoraði 23 stig fyrir snæfell og Atli Rafn Hreinsson fjórtán. Hlynur Bæringsson skoraði þrettán stig og tók sautján fráköst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×