Innlent

Gæsluvarðhaldskrafa yfir fíkniefnaframleiðendum ræðst í dag

Af vettvangi.
Af vettvangi. MYND/Stöð 2

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ákveður í dag hvort krafist verður gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir tveimur af fjórum mönnum, sem handteknir voru í gær þegar lögregla afhjúpaði umfangsmikla fíkniefnaframleiðslu í iðnaðarhúsi í Hafnarfirði í gær.

Tveir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í gær, en mennirnir hafa allir gerst bortlegir við lög áður. Ekki liggur enn fyrir hvort framleiðslan var einungis ætluð á heimamarkað eða líka til útflutnings.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×