Formúla 1

McLaren frumsýnir með pompi og prakt

Lewis Hamilton fær nýjan McLaren fák frá Ron Dennis í janúar.
Lewis Hamilton fær nýjan McLaren fák frá Ron Dennis í janúar. mynd: Getty Images

McLaren liðið mun frumsýna 2009 keppnisbíl sinn í janúar á næsta ári í höfuðstöðvum liðsins í Woking I Surrey í Bretlandi.

Bílar næsta árs verða mikið breyttir frá þessu keppnistímabili og segja má að efnaminni liðin eigi meiri möguleika en síðustu ár. Búið er að einfalda yfirbyggingar bílanna með nýjum reglum. Þá verða þeir á raufalausum dekkjum og með ýmsan búnað sem öll lið verða að nota. Þetta er gert til að minnka kostnað.

McLaren frumsýnir fyrir framan fjölda gesta og fréttamanna, en Toyota hefur ákveðið að senda myndir af bílum sínum í tölvupósti til að spara. Í fyrra gerði Ferrari slíkt hið sama, bannaði myndatökur á frumsýningu liðsins, en það var vegna njósnamálsins umtalaða.

McLaren mun prófa 2008 bíl með 2009 hlutum í þessum mánuði á Spáni og í Portúgal. Fylgst verður með frumsýningum keppnisliða á Stöð 2 Sport á næsta ári, en keppnistímabillið hefst í mars. Þá verða fréttir af frumsýningum á visir.is og ítarefni á kappakstur.is.
















Fleiri fréttir

Sjá meira


×