Íslenski boltinn

Gunnleifur: Trúin er að eflast

Elvar Geir Magnússon skrifar
Gunnleifur Gunnleifsson.
Gunnleifur Gunnleifsson.

„Þetta var kærkomið og verðskuldað. Við börðumst eins og ljón. Trúin er að eflast með hverju stigi sem við náum og við trúum því að við getum klárað þetta dæmi," sagði Gunnleifur Gunnleifsson, fyrirliði HK, eftir 2-1 útisigur liðsins gegn ÍA í kvöld.

Eftir tvo sigurleiki í röð er útlitið heldur betur orðið bjartara hjá Kópavogsliðinu. Fjögur stig eru upp úr fallsætinu og liðið hefur náð að vinna sig upp úr stöðu sem virtist vonlaus.

„Við fengum óskabyrjun í kvöld og skoruðum tvö lagleg mörk. Við erum með góða framherja og erum hættulegir meðan við getum refsað svona. Það var frábært að komast í 2-0," sagði Gunnleifur.

„Núna erum við bara hugsa um okkur og okkur er alveg sama um hin liðin og hvernig þau spila. Við erum bara ákveðnir í að ná í þrjú stig hvernig sem við förum að því," sagði Gunnleifur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×