Íslenski boltinn

Viktor í tveggja leikja bann

Elvar Geir Magnússon skrifar
Viktor Bjarki Arnarsson.
Viktor Bjarki Arnarsson.

Viktor Bjarki Arnarsson hjá KR var á fundi aga- og úrskurðarnefndar KSÍ í dag dæmdur í tveggja leikja bann.

Viktor fékk að líta rauða spjaldið eftir að leik KR og Keflavíkur lauk á sunnudagskvöldið.

Eftir leikinn gekk hann upp að Þóroddi Hjaltalín dómara og mótmælti mjög dómgæslu leiksins. Fyrir vikið fékk hann bæði áminningu og brottvísun.

Hann missir af leik Fylkis og KR sem fer fram á morgun og einnig missir hann af leik KR gegn Breiðabliki í undanúrslitum VISA-bikarsins.

Guðmann Þórisson (Breiðablik), Tommy Nielsen (FH), Ólafur Stígsson (Fylkir), Stefán Þórðarson (ÍA), Rafn Andri Haraldsson (Þróttur) og bræðurnir Joseph og Sam Tillen (Fram) fengu allir eins leiks bann.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×