Viðskipti innlent

Century Aluminum hækkar á ný

Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, hækkaði um 4,1 prósent í fyrstu viðskiptum dagsins í Kauphöllinni í morgun. Gengi bréfa í félaginu rauk upp um 12,95 prósent í gær. Þá hafa bréf Marel Food Systems hækkað um 0,89 prósent.

Á móti hefur gengi bréfa í stoðtækjafyrirtækinu Össuri lækkað um 0,62 prósent og í Bakkavör um 0,47 prósent.

Sjö viðskipti áttu sér stað fyrsta stundarfjórðunginn í Kauphöllinni upp á 16,5 milljónir króna.

Úrvalsvísitalan stendur næsta óbreytt frá í gær, lækkar um 0,01 prósent og stendur í 637 stigum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×