Golf

Reykingar bannaðar áhorfendum en ekki keppendum

Elvar Geir Magnússon skrifar
Miguel Angel Jimenez með vindil.
Miguel Angel Jimenez með vindil.

Reykingar eru bannaðar áhorfendum á opna bandaríska meistaramótinu í golfi. Þetta er fyrsta stórmótið í golfi þar sem þessar reglur gilda. Verði maður uppvís af því að reykja á maður von á 8.000 króna sekt.

„Ég finn til með áhorfendum, mér finnst þetta ekki sanngjarnt," sagði Spánverjinn Miguel Angel Jimenez, einn fremsti kylfingur Evrópu, en hann er þekktur fyrir að hika ekki við að fá sér stóran vindil meðan á keppni stendur.

Golfsambandið fékk kvartanir vegna óbeinna reykinga og þá var talsverður óþrifnaður á vallarsvæðum vegna reykinga. „Á ekki bara að skipa öllum að hjóla í stað þess að keyra bíla? Við erum á opnu svæði. Ég hélt að fólk hefði frelsi til að gera það sem það vill," sagði Jimenez.

Skiptar skoðanir eru um reykingabannið en keppendur sjálfir og kylfusveinar þeirra þurfa ekki að hafa áhyggjur. Engar reglur hafa verið settar sem banna þeim að reykja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×