Innlent

Síldveiðiskipin aftur komin í íslensku lögsöguna

Íslensku síldveiðiskipin eru aftur komin inn í íslensku lögsöguna, en um helgina reyndu þau fyrir sér í færeysku lögsögunni.

Þau veiða síldina og makrílinn í troll og er nokkuð um að tvö skip dragi saman eitt troll. Með því móti virka trollin rétt undir yfirborðinu og kann það að skýra að hluta hversu mikið veiðist af makríl með síldinni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×