Enski boltinn

Pavlyuchenko kominn til Tottenham

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Roman Pavlyuchenko fagnar marki með rússneska landsliðinu á EM í sumar.
Roman Pavlyuchenko fagnar marki með rússneska landsliðinu á EM í sumar. Nordic Photos / AFP

Rússneski framherjinn Roman Pavlyuchenko hefur gengið til liðs við enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham frá Spartak Moskvu.

Kaupverðið er sagt nema 14 milljónum punda en hann var markahæsti leikmaður rússneska landsliðsins á EM í sumar. Rússland komst þá í undanúrslit keppninnar.

Pavlyuchenko skoraði einnig bæði mörk Rússa í 2-1 sigri á Englendingum í undankeppni EM 2008 í fyrra en Englendingar komust í kjölfarið ekki í sjálfa úrslitakeppnina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×