Innlent

Fjórði maðurinn enn í haldi lögreglu

Friðrik Smári Björgvinsson yfirlögregluþjónn.
Friðrik Smári Björgvinsson yfirlögregluþjónn.

Fjórði maðurinn sem handtekinn var í tengslum við fíkniefnaframleiðslu í Hafnarfirði í dag er enn í haldi lögreglu. Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn hjá rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, á ekki von á því að tekin verði ákvörðun um gæsluvarðhaldskröfu vegna hans fyrr en í fyrramálið.

Friðrik Smári segir að maðurinn hafi ekki verið handtekinn fyrr en á fimmta tímanum í dag og bendir á að lögreglan geti haldið honum í 24 klukkustundir án gæsluvarðhaldsúrskurðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×