Menning

Góð stemning í Kassanum

Kristbjörg Kjeld leikkona tók sig vel út á sviðinu þar sem hún klæddist bleikum síðerma bol.
Kristbjörg Kjeld leikkona tók sig vel út á sviðinu þar sem hún klæddist bleikum síðerma bol. fréttablaðið/Stefán

Það var margt um manninn á tískusýningu sem Ólafía Hrönn Jónsdóttir leikkona stóð fyrir í Kassanum á fimmtudagskvöldið. Sýndir voru bolir sem hún hannaði ásamt Elínu Þórhallsdóttur í tengslum við sýninguna Utan gátta, en þær stöllur hanna undir merkinu Lollell.

Sýningarmódelin voru ekki af verri endanum eins og sjá má á meðfylgjandi myndum, en eftir sýninguna voru bolirnir til sölu og rennur hluti ágóðans til mæðrastyrksnefndar.





Brosti sínu breiðasta Davíð Þór Jónsson píanóleikari brosti sínu breiðasta þegar hann kom fram á tískusýningunni.
Í stuði Margrét Vilhjálmsdóttir leikkona var í miklu stuði í Kassanum.


Tók sporið Elma Lísa Gunnarsdóttir leikkona var ófeimin á sýningargólfinu í flottum bleikum bol.
Innlifuð Brynhildur Guðjónsdóttir leikkona tók sig vel út í fjólubláum bol og stillti sér skemmtilega upp.
Þjóðleikhússtjóri Tinna Gunnlaugsdóttir Þjóðleikhússtjóri lét ekki sitt eftir liggja og sýndi meðal annars fjólubláan síðerma bol.
Allir í stuði Ólafía Hrönn Jónsdóttir í hörkustuði, ásamt þeim sem sýndu á tískusýningunni.
Ófeiminn Friðrik Friðriksson leikari vakti mikla lukku meðal sýningargesta þegar hann batt einn bolinn um hálsinn á sér.
flott Jónína Ben tók sig vel út að vanda.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×