Viðskipti innlent

Erlend félög hækka í Kauphöllinni - íslensk lækka

Úr álveri Norðuráls á Grundartanga
Úr álveri Norðuráls á Grundartanga

Gengi hlutabréfa í Century Aluminum hækkaði um 3,37 prósent í Kauphöllinni í dag og Færeyjabanka um 0,41 prósent. Þetta er eina hækkun dagsins.

Á sama tíma féll gengi bréfa í færeyska olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum um 4,59 prósent, Straumi um 2,05 prósent, Bakkavör um 0,76 prósent, Marel Food Systems um 0,14 prósent og Össuri um 0,1 prósent.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,72 prósent og endaði í 347 stigum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×