Golf

Glover: Ætti að geta spilað svona í hverri viku

Ómar Þorgeirsson skrifar
Lucas Glover.
Lucas Glover. Nordic photos/AFP

Bandaríkjamaðurinn Lucas Glover náði að standa af sér áhlaup frá reynsluboltunum Phil Mickelson og David Duval á lokahringnum á Opna-bandaríska meistaramótinu á Bethpage Black-vellinum og vann frækinn sigur í dag.

Hinn 29 ára Glover var á átta höggum undir pari fyrir lokahringinn sem hann spilaði á 73 höggum en það dugði til sigurs.

„Þetta var spurning um þolinmæði í dag. Völlurinn er skemmtilegur en erfiður og lét okkur alla finna vel fyrir því," segir Glover.

Besti árangur Glover fyrir sigurinn var þegar hann deildi tuttugasta sætinu á Masters-mótinu árið 2007 og því var kylfingurinn að taka stórt skref.

„Fyrst að ég vann þetta stórmót þá ætti ég að geta spilað svona í hverri viku. Þetta gefur mér í það minnsta mikið sjálfstraust upp á framhaldið að gera," segir Glover.

Ricky Barnes, David Duval og Phil Mickelson deildu öðru sætinu í mótinu en þetta var í fimmta skiptið sem að Mickelson, eða „Lefty" eins og hann er stundum kallaður, varð að sætta sig við annað sætið á Opna-bandaríska meistaramótinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×