Viðskipti innlent

Burlington Loan Management er stærsti erlendi kröfuhafi Glitnis

Írska fjármálafyrirtækið Burlington Loan Management er stærsti erlendi kröfuhafi Glitnis samkvæmt kröfuhafaskrá bankans. Heildarkröfur Burlington nema hátt í 150 milljörðum kr.

Af öðrum stórum erlendum kröfuhöfum má nefna Royal Bank of Scotland sem gerir kröfur upp á hátt í 100 milljarða kr. og Deka Bank í Þýskalandi sem gerir kröfur upp á hátt í 90 milljarða kr.

Af öðrum erlendum kröfuhöfum sem gera kröfur sem nema yfir 10 milljörðum kr. hver má nefna Sumitomo Mitsui og Nomura í Japan, frönsku bankana Credit Argicole og Socété Générale, UBS í Sviss og Fortis bankann.










Tengdar fréttir

Birna gerir 12,5 milljóna kröfu í þrotabú Glitnis

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, er ein af fjölmörgum fyrrverandi starfsmönnum Glitnis sem gerir kröfu í þrotabú bankans. Samkvæmt kröfuhafalista Glitnis sem fréttastofa hefur undir höndum nema kröfur Birnu rétt tæpum 12,5 milljónum króna.

Landsbankinn með hæstu kröfurnar í Glitni

Landsbankinn gerir hæstu kröfurnar í Glitni af innlendum aðilum eða samtals tæplega 140 milljarða kr. Hinsvegar á Glitnir í Lúixemborg stærstu einstöku kröfuna en hún hljóðar upp á 126,4 milljarða kr.

Félag í eigu Bjarna krefst 130 milljóna úr búi Glitnis

Sjávarsýn ehf., félag í eigu Bjarna Ármannssonar, gerir 129,5 milljóna króna kröfu í þrotabú Glitnis. Þetta kemur fram í kröfuskrá bankans sem birt var kröfuhöfum í nótt. Krafan fellur undir almennar kröfur. Bjarni var bankastjóri Glitnis til ársins 2007.

Tæplega 8.700 kröfum lýst í þrotabú Glitnis

Allir sem sátu í framkvæmdastjórn Glitnis, fram að gjaldþroti bankans fyrir rúmu ári, gera kröfur í þrotabú hans en tæplega 8.700 kröfum var lýst í búið, samkvæmt tilkynningu frá Slitastjórn Glitnis í gærkvöldi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×