Fótbolti

Ribery ánægður í München

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Franck Ribery fagnar marki í leik með Bayern München.
Franck Ribery fagnar marki í leik með Bayern München. Nordic Photos / AFP

Franck Ribery segir ekkert hæft í þeim sögusögnum að hann sé á leið til Real Madrid í sumar þrátt fyrir það sem Franz Beckenbauer hefur sagt.

Beckenbauer sem er forseti félagsins lét hafa eftir sér að hann myndi ekki standa í vegi fyrir Ribery ef hann vildi fara frá félaginu nú í sumar.

„Ég hef aldrei íhugað að fara frá Bayern München," sagði Ribery. „Mér líður vel í München. Fjölskyldu minni líður vel í borginni líka. Stuðningsmennirnir elska mig og er það mér mikilvægt. Ég er samningsbundinn félaginu til 2011 og vil virða þann samning."

„Real Madrid? Það er bara orðrómur og ekkert annað," bætti hann við en Ribery hefur einnig verið orðaður við Juventus.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×