Innlent

Opnun Kosts frestað

Jón Gerald Sullenberger ásamt málara.
Jón Gerald Sullenberger ásamt málara.

Fyrirhugað var að opna matvöruverslunina Kost í dag klukkan ellefu en ekki verðu af því samkvæmt tilkynningu.

Vegna vandræða með tölvukerfi verslunarinnar verður ekki unnt að hefja sölu á áætlum tíma. Unnið hefur verið að því í alla nótt að koma kerfinu í lag og vonir standa enn til að unnt verði að opna verslunina í dag.

En búist er við opnuninni seinki um einhverja klukkutíma.

Nýjar upplýsingar um hvenær verslunin opnar er að vænta í hádeginu í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×