Körfubolti

IE-deild kvenna: Úrslit og stigaskor

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Mynd/Daníel

Kvennalið KR hélt sigurgöngu sinni í Iceland Express-deild kvenna áfram í kvöld. Breyttu engu að liðið væri án þjálfara síns, Benedikts Guðmundssonar, sem er á leið til Kína með karlaliði félagsins.

Keflavík var engin hindrun í kvöld fyrir KR sem vann sinn ellefta leik í röð.

Mesta spennan var í leik Hauka og Hamars að Ásvöllum. Þar var jafnt allt til enda en Hamar vann að lokum með einu stigi.

Heather Ezell hefði getað tryggt Haukum sigurinn er hún fékk þrjú vítaskot undir lokin.

Hún nýtti aðeins eitt þeirra og Hamar fagnaði því eins stigs sigri.

Úrslit kvöldsins:

Haukar-Hamar  64-65

Stig Hauka: Heather Ezell 32, Ragna Brynjarsdóttir 16, Helena Hólm 5, Guðrún Ámundadóttir 4, Telma Björk Fjalarsdóttir 4, Margrét Hálfdánardóttir 3.

Stig Hamars: Koren Schram 26, Sigrún Ámundadóttir 24, Hafrún Hálfdánardóttir 6, Kristrún Sigurjónsdóttir 5, Guðbjörg Sverrisdóttir 2, Íris Ásgeirsdóttir 2.

Grindavík-Snæfell  81-54

Stig Grindavíkur: Michele DeVault 27, Petrúnella Skúladóttir 15, Íris Sverrisdóttir 12, Helga Hallgrímsdóttir 10, Berglind Magnúsdóttir 10, Alma Garðarsdóttir 5, Jovana Lilja Stefánsdóttir 2.

Stig Snæfells: Gunnhildur Gunnarsdóttir 17, Unnur Ásgeirsdóttir 9, Ellen Högnadóttir 9, Björg Einarsdóttir 7, Sara Andrésdóttir 6, Helga Björgvinsdóttir 4, Hrafnhildur Sævarsdóttir 2.

Njarðvík-Valur  67-48

Stig Njarðvíkur: Shantrell Moss 28, Ólöf Helga Pálsdóttir 11, Heiða Valdimarsdóttir 10, Anna Ævarsdóttir 8, Sigurlaug Guðmundsdóttir 3, Auður Jónsdóttir 3, Helga Jónasdóttir 2, Harpa Hallgrímsdóttir 2.

Stig Vals: Berglind Ingvarsdóttir 15, Hrund Jóhannsdóttir 11, Þórunn Bjarnadóttir 11, Birna Eiríksdóttir 6, Kristín Óladóttir 3, Hanna Hálfdánardóttir 2.

KR-Keflavík  70-55

stig KR: Unnur Tara Jónsdóttir 15, Jenny Pfeiffer-Finora 12, Hildur Sigurðardóttir 11, Signý Hermannsdóttir 11, Margrét Kara Sturludóttir 9, Guðrún Þorsteinsdóttir 6, Helga Einarsdóttir 5, Jóhanna Sveinsdóttir 1.

Stig Keflavíkur: Birna Valgarðsdóttir 22, Kristi Smith 14, Marín Rós Karlsdóttir 9, Bryndís Guðmundsdóttir 4, Rannveig Randversdóttir 2, Svava Stefánsdóttir 2, Hrönn Þorgrímsdóttir 1, Telma Ásgeirsdóttir 1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×