Innlent

Logi býður sig fram í prófkjöri Samfylkingarinnar

Logi Már Einarsson, arkitekt, býður sig fram þriðja sætið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi.
Logi Már Einarsson, arkitekt, býður sig fram þriðja sætið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi.
Logi Már Einarsson, arkitekt, hefur ákveðið að bjóða sig fram þriðja sætið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi. Hann hvetur kjósendur til þess að velja konu í annað af tveimur efstu sætunum.

,,Þörf er á siðbót í stjórnmálum. Virðingu Alþingis þarf að endurreisa með vönduðum vinnubrögðum, ekki snoturri umgjörð. Ég vil auðmjúka stjórnmálamenn sem týna sér ekki í smáatriðum heldur einbeita sér að heildarmyndinni. Gleyma sér ekki eingöngu í verkefnum dagsins heldur hafa kjark og þor til að horfa til framtíðar. Viðurkenni takmörk sín og séu duglegir við að leita til sérfræðinga," segir Logi og bætir við Alþingismenn verði að bregðast við kröfum almennings um opnari umræðu.

,,Alþingi á að endurspegla þarfir og óskir fólksins. Þess vegna þurfum við meiri fjölbreyttni á þing; konur og karla á öllum aldri, með ólíkan bakgrunn. En umfram allt hugmyndaríkt fólk, með sjálfstæðar skoðanir, sem þorir að standa gegn flokksræðinu."

Logi segir að vandi fyrirtækjanna sé vandi heimilanna og rekstarumhverfi þeirra verði að tryggja. ,,Vandamálin verða ekki eingöngu leyst með skammtímalausnum, þó þær séu bráðnauðsynlegar. Við verðum að tryggja stöðugra efnahagsumhverfi, svo fyrirtæki og heimili geti gert áætlanir til lengri tíma. Upptaka Evru er nauðsynlegur liður í því. Við eigum að ganga til aðildarviðræðna við Evrópusambandið strax og bera síðan þann samning undir þjóðina."

Logi er 44 ára arkitekt, búsettur á Akureyri, kvæntur Arnbjörgu Sigurðardóttur lögmanni. Hann á tvö börn. Logi rekur arkitektastofuna Kollgátu og hefur mikla reynslu á sviði mannvirkjagerðar og skipulagsmála.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×