Viðskipti innlent

Stjórnvöld sögð pissa í skó lántakenda

Breki Karlsson.
Breki Karlsson.

Stjórnvöld eru að pissa í skóinn hjá lántakendum, að mati Stofnunar um fjármálalæsi við Háskólann í Reykjavík sem varar almenning við því að taka boði stjórnvalda um lægri greiðslubyrði. Á endanum muni fólk greiða meira til baka af lánum sínum en ef þau héldust óbreytt.

Aðgerðir stjórnvalda til að leysa greiðsluvanda heimila taka gildi núna um mánaðamótin. Stofnunin segir hins vegar að þessi leið gagnist lítt nema næstu þrjú til fjögur árin. Um leið og laun hækki - þá hækki lánin og greiðslubyrðin og því séu launahækkanir framtíðar eyrnarmerktar lánastofnunum. Breki Karlsson er forstöðumaður Stofnunar um fjármálalæsi.

Laun sumra stétta hækka um mánaðamótin í samræmi við kjarasamningana sem tókst að bjarga fyrir horn á elleftu stundu nú í vikunni. Breki bendir á að gallinn við aðgerðirnar sé einkum fólginn í því að afborganir lána skuli tengdar við þróun launa og atvinnustigs. Það þýði að ef atvinnustig verður áfram lágt og meðallaun hækka ekki, haldist greiðslubyrðin í samræmi við það. Þegar greiðslugetan aukist með hækkandi launum og auknu vinnuframboði, hækki greiðslubyrðin. Hætta sé á að það leiði til þess að reynt verði að halda launum niðri því launahækkanir hjá einum hópi geti haft í för með sér hækkanir á lánum annarra starfsstétta. Þá hafi þetta í för með sér að launahækkanir framtíðarinnar séu eyrnamerktar lánastofnunum út lánstímann og hugsanlega þremur árum betur og það muni lita kjarabaráttu framtíðar.

Verðtryggð fasteignalán fylgja verðbólgu - en hin nýja lánaleið stjórnvalda þýðir að lánin fylgja svokallaðri greiðslujöfnunarvísitölu, sem tekur mið af þróun launa og atvinnuleysis. Það þýðir að íbúðalán fólks hækka þegar laun hækka og atvinnuleysi minnkar. Breki telur í ljósi sögunnar að greiðslubyrði muni með aðferð stjórnvalda hækka hraðar heldur en ef þau væru áfram látin fylgja verðbólgu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×