Viðskipti innlent

Ekki búið að yfirheyra Ólaf Ólafsson

Húsleit fór fram á heimilum fyrrverandi stjórnenda Kaupþings og í bankanum á vegum sérstaks sakskóknara í tengslum við rannsókn á kaupum eignarhaldsfélags sjeiksins Al Thani á 5% hlut í Kaupþingi. Ólafur Ólafsson, sem var um tíma annar stærsti eigandi Kaupþings og hafði milligöngu um viðskiptin, hefur ekki verið yfirheyrður.

Í Morgunblaðinu kemur fram að húsleit hafi einnig farið fram á heimili Ólafs Ólafssonar, skrifstofum Kjalars, sem er eignarhaldsfélag í eigu Ólafs og Samskipum þar sem rannsakendur hafi talið að Ólafur væri með skrifstofu. Það reyndist hinsvegar rangt og gripu rannsakendur í tómt. Þá fór einnig fram húsleit á skrifstofu Q Iceland Finance sem er til húsa hjá lögmannsstofunni Fulltingi, skrifstofu Arion verðbréfavörslu og Consolium, ráðgjafafyrirtækis fyrrum forstjóra Kaupþings, þeirra Ingólfs Helgasonar og Hreiðars Más Sigurðssonar.

Tilkynnt var um kaup sjeiksins á 5% hlut í Kaupþingi um tveimur vikum fyrir hrun bankanna. Kaupverð bréfanna var 25,6 milljarðar króna og voru kaupin fjármögnuð í gegnum tvö félög í eigu Ólafs Ólafssonar og Al Thani en félögin eru skráð á bresku Jómfrúareyjunum.

Í yfirlýsingu frá Ólafi Þór Haukssyni, sérstökum saksóknara, segir að til rannsóknar sé grunur um markaðsmisnotkun en viðurlög við því broti varða allt að sex ára fangelsi. Nokkrir hafa fengið réttarstöðu grunaðra í tengslum við málið og er talið líklegt að fleiri fái þá stöðu þegar fram í sækir. Ólafur, sem þekkir sjeikinn persónulega og hafði milligöngu um viðskiptin, hefur ekki verið yfirheyrður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×