Síðasta tækifærið fyrir sigur í Síkinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. mars 2009 18:30 Kristinn Friðriksson, þjálfari Tindastóls fær sína gömlu félaga í heimsókn í kvöld. Mynd/Vilhelm
Tindastólsmenn eiga enn möguleika á að komast í úrslitakeppnina þrátt fyrir að liðið sé búið að tapa sjö deildarleikjum í röð og ekki búið að vinna á heimavelli síðan í nóvember. Tindastóll fær Íslandsmeistara Keflavíkur í heimsókn í Síkið í kvöld. Tindastóll hefur tapað 11 af síðustu 12 leikjum sínum í Iceland Express deild karla og á þeim tíma farið úr 3. sæti deildarinnar niður í 9. sætið þar sem liðið er nú. Eftir að liðið vann 6 af fyrstu 8 leikjum sínum bjuggust flestir að Stólarnir yrðu með heimavallarrétt í úrslitakeppninni en meiðsli og útlendingavandræði hafa komið mikið niður á liðinu. Tindastóll vann þrjá fyrstu heimaleiki vetrarins og var tíu stigum yfir í hálfleik, 40-30, í fjórða heimaleiknum sem var á móti ósigruðu liði KR. KR-ingar unnu hinsvegar síðari hálfleikinn 66-30 og síðan þá hefur Tindastóll ekki unnið heimaleik í Iceland Express deildinni. Síðan að Tindastóll tapaði fyrir KR (-26) hafa Breiðablik (-4), Snæfell (-7), Grindavík (-26), ÍR (-1), Njarðvík (-11) og Þór Akureyri (-3) farið burtu frá Króknum með bæði stigin. Eins og sjá má á þessu hafa flestir þessara heimaleikja tapast naumlega. Tindastóll hefur aldrei tapað svo mörgum heimaleikjum í röð í úrvalsdeild en gamla metið voru fimm tapleikir í röð tímabilið 1996-97. Tindastóll tapaði þá fimm fyrstu heimaleikjum tímabilsins. Keflavík hefur haft gott tak á Tindastól undanfarin ár því Tindastóll hefur ekki unnið Keflavíkurliðin í úrvalsdeildinni síðan 15. febrúar 2004. Frá þeim tíma hefur Keflavík unnið sjö innbyrðisleiki liðanna í röð í deildinni.
Dominos-deild karla Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Töpuðu með ellefu í Tékklandi Handbolti Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira