Innlent

Brasilískur flóttamaður frjáls eftir viku

Hosmany Ramos.
Hosmany Ramos.

Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði kröfu lögreglustjórans í Reykjavík að brasilíski flóttamaðurinn Hosmany Ramos yrði úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir að hann lyki 30 daga afplánun sem hann hlaut fyrir að ferðast til Íslands á vegabréfi bróður síns.

Að sögn verjanda Hosmanys, Hilmars Ingimundarsonar, þá sækir lögreglustjóri málið að beiðni dómsmálaráðherra.

Hosmany er á flótta frá Brasilíu eftir að hafa verið dæmdur í áratuga fangelsisvist þar í landi fyrir stórfelld fíkniefnamisferli og morðs á flugmanni sem starfaði fyrir hann við fíkniefnaflutning.

Sjálfur er Hosmany menntaður lýtalæknir og er óhætt að segja að hann er þekktasti fangi Brasilíu. Hann hefur meðal annars skrifað bækur auk þess sem hann hefur gagnrýnt aðbúnað fanga þar í landi harðlega. Sjálfur segist hann óttast um líf sitt af þeim ástæðum.

Fregnir af Hosmany hér á landi hafa vakið gríðarlega sterk viðbrögð í Brasilískum fjölmiðlum. Meðal annars hefur dómsmálaráðherrann sagt opinberlega að hann væri reiðubúinn til þess að koma til Íslands ef það gæti orðið til þess að Hosmany yrði framseldur.

Enginn framsalssamningur er á milli Íslands og Brasilíu. Nokkrir Íslendingar sitja í fangelsum þar í landi. Dæmi eru þó um að Brasilía hefur haft fangaskipti við ríki sem brasilískir glæpamenn hafa dvalið í. Síðast var það í Mónakó þegar fjárglæframaður var framseldur fyrir fanga frá Mónakó sem afplánuðu dóma í brasilískum fangelsum.

Að sögn Hilmars, verjanda Hosmany, þá var krafa lögreglustjórans óeðlileg þar sem ekki er hægt að krefjast fyrirfram gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir mönnum. Hosmany er enn í fangelsi en honum verður sleppt lausum 11. september. Mögulegt er að aftur verði farið fram á gæsluvarðhald yfir Hosmany. Að öðrum kosti mun hann verða frjáls.

Hosmany hefur óskað eftir hæli á Íslandi af mannúðarástæðum. Útlendingastofnun hefur beiðnina til meðferðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×