Handbolti

Einar Örn Jónsson verður í banni í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Einar Örn Jónsson í leik með Haukum í vetur.
Einar Örn Jónsson í leik með Haukum í vetur. Mynd/Stefán

Haukamaðurinn Einar Örn Jónsson má ekki taka þátt í öðrum leik liðsins á móti Val í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í N1 deild karla í handbolta. Aganefnd HSÍ dæmdi hann í eins leiks bann í gær.

Einar Örn Jónsson fékk rauða spjaldið fyrir að slá í andlit Valsmannsins Sigurðar Eggertssonar í fyrsta leiknum sem Haukar unnu 29-24. Dómarar leiksins, Helgi Hallsson og Sigurjón Þórðarson, ákváðu að gefa honum rautt spjald eftir löng fundarhöld.

Rauða spjaldið kom eftir 45 mínútur og 14 sekúndur þegar staðan var 20-17 fyrir Hauka en Einar Örn hafði þá skoraði eitt mark í leiknum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×