Innlent

Heiminum er ofboðið

Breki Logason skrifar
Sveinn Rúnar Hauksson
Sveinn Rúnar Hauksson MYND/GVA

Félagið Ísland-Palestína hefur boðað til mótmæla fyrir utan Bandaríska sendiráðið klukkan 17:00 í dag. Sveinn Rúnar Hauksson formaður félagsins segir að mótmæla eigi stuðningi Bandaríkjanna við árásir Ísraelsmanna. „Þeir sjá þeim fyrir vopnum og fjármagni við að heyja þetta árásarstríð og við ætlum að minna á þá staðreynd og um leið fordæma þennan stuðning," segir Sveinn Rúnar en hópurinn mun einnig afhenda mótmælayfirlýsingu. Hann boðar mikinn fund á laugardaginn í Iðnó.

Sveinn Rúnar segist ánægður með yfirlýsingar utanríkisráðherra sem hefur í þrígang fordæmt árásir Ísraelsmanna á Gaza. „Síðasa yfirlýsing hennar var mjög öflug og við fögnum henni. Við hefðum samt viljað að menn gengju lengra með því að gera Ísraelsstjórn það skiljanlegt að svona framferði verði ekki þolað," segir Sveinn.

Hann segist gjarnan vilja að nóg væri að senda yfirlýsingar en það þurfi meira til. „Við sjáum ekkert annað ráð en að fleiri ríki sem eiga í stjórnmálasambandi við Ísrael fylgi í kjölfarið. Það gæti þá orðið til þess að virkilega koma þeim skilaboðum til ísarealsmanna að þeir hætti þessum hernaði gegn varnalausu fólki. Heiminum er ofboðið og hvert sem litið er sjáum við mótmæli, meira að segja í Bandaríkjunum og Ísrael þó við heyrum kannski ekki mikið af því."

Sveinn Rúnar segir að félagið undirbúi nú mikinn fund í Iðnó á laugardaginn þar sem aðalræðumenn verða aðstoðarritstjórar Morgunblaðsins og Fréttablaðsins. Auk þess muni Bubbi Morthens flytja nýtt lag. Endanleg dagskrá liggur þó ekki fyrir.

Hann hvetur alla til þess að mæta og mótmæla fyrir utan Bandaríska sendiráðið í dag klukkan 17:00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×