Telur enn koma til greina að skila AGS láninu Jón Hákon Halldórsson skrifar 3. maí 2009 11:38 Lilja Mósesdóttir þingmaður segir enn koma til greina að skila AGS láninu.
Lilja Mósesdóttir, hagfræðingur og nýkjörinn þingmaður VG, vill fremur skila láni Alþjóðagjaldeyrissjóðsins en að láta vaxtakostnað vegna lánsins bitna á stuðningi við fólk sem þarf aðstoð. Þetta kom fram í máli Lilju á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Þar ræddu Lilja og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hagfræðingur og nýkjörinn þingmaður Samfylkingarinnar um niðurskurð á fjárlögum og vaxtakostnað ríkissjóðs. Lilja sagði að mögulegt væri að fara til Norðurlandanna og sækja um lán frá þeim. Benda þyrfti ríkjum í kringum okkur á að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefði sett stíf skilyrði fyrir láninu. Meðal annars um verulega háa stýrivexti, sem væru að keyra atvinnulífið í kaf. Sigríður Ingibjörg sagðist ekki vera sammála Lilju um Alþjóðagjaldeyrssjóðinn. Sú áætlun sem samstarfið við sjóðinn byggi á væri mikilvæg og fæli í sér aðgerðir sem ríkið þyrfti hvort eð er að ráðast í. Þá sagðist Lilja vilja að framtíð Íslands yrði byggð upp í sátt við alþjóðasamfélagið. Sigríður og Lilja voru hins vegar sammála um að það þyrfti að skera niður í ríkisrekstri og að vaxtagreiðslur vegna lána yrðu miklar. Þá sögðu þær að verja þyrfti hag hinna verst settu í þeim samdrætti sem væri framundan. Það yrði að hlífa menntakerfinu og heilbrigðis- og velferðarkerfinu við niðurskurðinum.
Mest lesið Stór hópur fullorðins fólks á Íslandi lifir eins og börn Innlent Banaslys á Suðurlandsvegi eftir grjóthrun Innlent Spyr um ábyrgð skólastjóra í stóra skómálinu Innlent Suðurlandsvegi lokað vegna alvarlegs slyss Innlent Menningarslys verði frumvarpið samþykkt Innlent Hvetja landsmenn til að búa sig undir neyðarástand Innlent „Hér er verið að saka fólk um alvarlega þætti“ Innlent Vilja úthýsa einkaþotum og þyrlum Innlent Trump „mjög reiður“ út í Pútín Erlent Reksturinn í uppnámi og uppsagnir fyrirhugaðar Innlent Fleiri fréttir „Allt að því hroki eða yfirlæti“ að tala um reynsluleysi „Hér er verið að saka fólk um alvarlega þætti“ Banaslys á Suðurlandsvegi eftir grjóthrun Skipar stýrihóp um áfengis- og vímuefnameðferð „Ég vil að þú sért alltaf með farða, annars sjást bólurnar þínar“ Vilja úthýsa einkaþotum og þyrlum Hvetja landsmenn til að búa sig undir neyðarástand Björn hvergi af baki dottinn Sjór gekk yfir fjárhús í Vík og allt á floti Suðurlandsvegi lokað vegna alvarlegs slyss Hveitibrauðsdögunum lokið: Ríkisstjórnin pólitískt stórtækari en von var á Menningarslys verði frumvarpið samþykkt Spyr um ábyrgð skólastjóra í stóra skómálinu Segir ÍR að slökkva á skiltinu Ríkisstjórnin hefur starfað í hundrað daga og fjármálaáætlun kynnt Bein útsending: Gera upp fyrstu hundrað daga ríkisstjórnarinnar Stór hópur fullorðins fólks á Íslandi lifir eins og börn Hallarekstur stöðvaður á næstu tveimur árum Áfram talinn vanhæfur til að taka sæti í ráðinu Bein útsending: Ráðherra kynnir fjármálaáætlun Reksturinn í uppnámi og uppsagnir fyrirhugaðar Trúverðugleiki forsætisráðherra sé í húfi Grindvíkingar segjast vera Excel skjöl í ráðuneytum í Reykjavík Grænlandsheimsókn varaforseta og þrumuveður Þremur vísað út af Landspítalanum Stemningin farin ári fyrir stjórnarslitin Arftaki 757-þotunnar ekki í boði frá Boeing Eina fjallamennskunámið leggst að óbreyttu af Taldi 150 holur á stuttum vegakafla á Suðurlandi „Það er voða hentugt að kenna okkur um þetta en við erum alsaklaus“ Sjá meira