Golf

Birgir Leifur á einu höggi yfir pari

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Birgir Leifur Hafþórsson kylfingur.
Birgir Leifur Hafþórsson kylfingur. Mynd/Elísabet

Birgir Leifur Hafþórsson lék á einu höggi yfir pari á öðrum keppnisdegi opna Andalúsíu-mótsins sem fer fram í Sevilla á Spáni. Mótið er hluti af Evrópumótaröðinni í golfi.

Birgir Leifur byrjaði vel og var á einu höggi undir pari eftir fyrstu sextán holurnar í dag. Hann fékk hins vegar skolla á tveimur af síðustu þremur holunum og lauk því keppni á einu höggi yfir pari.

Samtals er hann á tveimur höggum undir pari og er sem stendur í 24.-42. sæti. Enn eiga mikið af kylfingum eftir að ljúka keppni í dag en hann ætti að vera öruggur fyrir niðurskurðinn að loknum keppnisdeginum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×