Fótbolti

Emerson látinn fara frá Milan

Emerson í leik með Juventus
Emerson í leik með Juventus AFP

Brasilíski miðjumaðurinn Emerson hefur komist að samkomulagi við Milan um að fá sig lausan undan samningi hjá félaginu, en hann hefur komið lítið við sögu hjá liðinu í vetur.

Hinn 33 ára gamli Emerson er fyrrum brasilískur landsliðsmaður og spilaði áður með Roma, Juventus, Real Madrid og Bayer Leverkusen.

Hann hefur borið viðurnefnið "Puma" lengst af ferlinum og þótti lipur eins og köttur á miðjunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×