Formúla 1

Ron Dennis hættir hjá McLaren

Ron Dennis og Lewis Hamilton
Ron Dennis og Lewis Hamilton NordicPhotos/GettyImages

Ron Dennis ætlar að hætta sem yfirmaður McLaren liðsins í Formúlu 1 og kemur það í hlut hægri handar hans Martin Whitmarsh að taka við stjórntaumunum.

Hinn 61 árs gamli Dennis hefur verið stjóri McLaren allar götur síðan árið 1981, en hann verður áfram stjórnarformaður liðsins.

Whitmarsh er 51 árs gamall og tekur við stjórn liðsins þann 1. mars nk.

"Það er kominn tími til að Martin taki við. Þetta var alfarið mín ákvörðun og þetta er starf sem Martin mun hafa mikla ánægju af og héðan í frá mun hann taka flestar stærstu ákvarðanir liðsins," sagði Dennis í dag, en bætti við að þessi ákvörðun þýddi alls ekki að hann væri að setjast í helgan stein.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×