Golf

Chelsea jafnar tilboð Liverpool í Johnson

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Glen Johnson varð bikarmeistari með Portsmouth í fyrra.
Glen Johnson varð bikarmeistari með Portsmouth í fyrra. Nordic Photos / Getty Images
Portsmouth hefur nú samþykkt tilboð Chelsea í bakvörðinn Glen Johnson upp á 17,5 milljónir punda. Félagið var þegar búið að taka jafn háu boði Liverpool í kappann og allt útlit fyrir að Johnson væri á leið þangað.

Johnson kom til Portsmouth frá Chelsea fyrir fjórar milljónir punda fyrir tveimur árum síðan. Hann þarf nú að ákveða sig hvert hann vill fara.

"Málið verður leyst í byrjun næstu viku," sagði Peter Storrie, framkvæmdarstjóri Portsmouth. "Sjálfur er mér sama hvert hann fer, hann ræður því sjálfur. Samningarnir eru nánast eins."

"Glen vill spila reglulega í Meistaradeildinni. Hann er búinn að vinna sér sæti í enska landsliðinu á nýjan leik og ég skil hann því vil. Stundum verður maður að vera sanngjarn gagnvart leikmönnunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×