Lífið

Emilía Ýr sigurvegari knattspyrnumóts NFFG

Arnar Gunnarsson skrifar
Varaforseti NFFG, Birgir Þór, sýnir hér frábæra takta
Varaforseti NFFG, Birgir Þór, sýnir hér frábæra takta
Knattspyrnumót NFFG var haldið með miklu pompi og prakt föstudaginn 23.október.

Alls voru átta lið skráð til leiks og verður ekki annað sagt en þau hafi verið æði misjöfn að styrkleika. Skipulag mótsins var til fyrirmyndar en stuðst var við hið víðfræga „skipt í tvo riðla og efstu tvö liðin áfram í hvorum riðli“ fyrirkomulag.

Samkvæmt erlendum veðbönkum var búist við baráttu tveggja liða um sigur í mótinu, The Untouchables og Emilía Ýr. Lið Emilíu Ýr var einungis skipað fótboltahetjum úr meistaraflokksliði Stjörnunnar en í liði Untouchables voru gamlar íþróttahetjur sem ákváðu að taka skóna af hillunni fyrir mótið.

Það ríkti einnig mikil spenna um hvernig stelpulið mótsins, „Powerpuff Girls“, myndi standa sig á sínu fyrsta stórmóti.

Mótið var bráðskemmtilegt og að lokum stóð Emilía Ýr uppi sem sigurvegari mótsins eftir að hafa lagt Lið Sigurðar af velli í æsispennandi úrslitaleik.

Emilía Ýr var vel að sigrinum kominn en leikmenn liðsins sýndu oft á tíðum stórglæsilegan fótbolta.

Þrátt fyrir það voru flestir sammála um The Untouchables hafi átt meira skilið en tölur gefa til kynna en samleikur liðsins minnti oftar en ekki á sambabolta Brasilíumanna.

Ekki verður annað sagt en að Powerpuff Girls hafi komið skemmtilega á óvart en þær náðu meðal annars jafntefli á móti miðlungsliði Byssuvinafélagsins Hjörtur í leik sem þær hefðu átt að vinna.

Almenn ánægja var með mótið og var öllum þátttakendum boðið upp í pizzu og kók eftir úrslitaleikinn.

Sigurvegarar mótsins verða verðlaunaðir í hádegishléi þriðjudaginn 27.október í Urðarbrunni, hátíðarsal FG.



Þessi frétt er skrifuð af fulltrúa FG fyrir Skólalífið á Vísi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.