Fótbolti

Kahn hefur ekki áhuga á Schalke

Nordic Photos/Getty Images

Oliver Kahn, fyrrum markvörður Bayern Munchen og þýska landsliðsins, segir ekkert hæft í þeim fréttum að hann sé að taka við úrvalsdeildarliðinu Schalke.

Kahn er einn þeirra sem orðaðir hafa verið við þjálfara stöðuna síðan Andreas Mueller var rekinn í vikunni en markvörðurinn fyrrverandi segist ekkert vera að hugsa um þjálfunarstörf að svo búnu.

"Ég er ekki einu sinni að hugsa um að koma aftur í fótboltann. Ég hef mikið að gera og fer brátt til Asíu þar sem ég verð í talsverðan tíma," sagði Kahn í samtali við dagblaðið TZ í Munchen.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×