Bjartsýn á horfur Teymis 11. mars 2009 04:00 Þórdís Sigurðardóttir „
Við höfum lengi vitað af því að ábyrgðin gæti fallið á okkur. Hún kemur ekki á óvart," segir Þórdís Sigurðardóttir, stjórnarformaður Teymis, um skuldabréfaflokk upp á 2,7 milljarða króna sem féll á félagið í kjölfar sölu Íslenskrar afþreyingar á Senu í síðustu viku. Engar skuldir fylgdu Senu til nýrra kaupenda og falla skuldbindingar á herðar Íslenskrar afþreyingar að skuldabréfaflokknum undanskildum. Þórdís segir ljóst að skuldir Teymis hafi hækkað upp á síðkastið og eiginfjárhlutfallið sé mjög lágt. Þörf sé á fjárhagslegri endurskipulagningu. Teymi, sem var afskráð í fyrra, tapaði 5,5 milljörðum króna á fyrri hluta síðasta árs. Skuldir námu 35 milljörðum króna og var eiginfjárhlutfall átján prósent. Teymi fundaði með kröfuhöfum í desember og þá lá fyrir að félagið gæti ekki staðið við allar skuldbindingar. Landsbankinn er stærsti kröfuhafi Teymis. „Ég hef reynt að halda Teymi saman og búa til áætlun sem geri kröfuhöfum kleift að fá allar sínar kröfur til baka. Ég er mjög bjartsýn á það," segir Þórdís. - jab
Markaðir Mest lesið Fríar skólamáltíðir séu skammgóður vermir Viðskipti innlent Verulega minni verðbólga Viðskipti innlent Samherji hvetur Odd Eystein til frekari verka Viðskipti innlent Þrotabú Wok on vill tugmilljóna endurgreiðslu frá Kristjáni Viðskipti innlent Frá RÚV til Coca-Cola Viðskipti innlent Spá sömuleiðis óbreyttum stýrivöxtum Viðskipti innlent Að hætta að vera vandræðaleg í nýrri vinnu Atvinnulíf Mun leiða ferskvatnseldi hjá First Water Viðskipti innlent Salzburg úr sögunni hjá Play Viðskipti innlent Ummæli seðlabankastjóra „skringileg“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Salzburg úr sögunni hjá Play Samherji hvetur Odd Eystein til frekari verka Spá sömuleiðis óbreyttum stýrivöxtum Þrotabú Wok on vill tugmilljóna endurgreiðslu frá Kristjáni Fríar skólamáltíðir séu skammgóður vermir Frá RÚV til Coca-Cola Verulega minni verðbólga Mun leiða ferskvatnseldi hjá First Water Sátt Eimskipa við Samkeppniseftirlitið kom Samskipum ekki við Óvíða sem flugstarfsemi er jafn stór þáttur í efnahagslífi þjóðar Spá enn einum fundinum án breytingar Icelandair hækkað um ríflega fjórðung Munu fljúga til Nashville næsta sumar Rúv tapað nærri hálfum milljarði á árinu Átta sagt upp hjá Arion banka Bein útsending: Ársfundur Orkustofununar á Akureyri Hagnaður félags Björns Braga dróst verulega saman Ummæli seðlabankastjóra „skringileg“ Icelandair fyrsta samstarfsflugfélag bandarísks risa Spá verðbólgu undir fjórum prósentum á næsta ári Fjármálaeftirlitið samþykkir samruna Landsbankans og TM Verður framkvæmdastjóri á hugbúnaðarsviði Origo Geta veitt fyrirtækjum hagstæðari lán Telur vaxtahækkanir viðskiptabankanna brattar Bein útsending: Haustráðstefna Stjórnvísi – Snjöll framtíð Þrálát verðbólga og hægari vöxtur geti skapað áskoranir fyrir fjármálakerfið Hrönn, Viktor og Þórdís til Varðar Ísak Einar til Samtaka atvinnulífsins Andri aðstoðarframkvæmdastjóri Júní Sunna veitir Livio samkeppni í frjósemi Sjá meira