Viðskipti innlent

Hawkpoint ráðið til starfa

Fjórum fyrirtækjum var boðið að sinna samningagerð milli gömlu og nýju bankanna.
Fjórum fyrirtækjum var boðið að sinna samningagerð milli gömlu og nýju bankanna. Mynd/Valli
Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í gær að ráða evrópska ráðgjafarfyrirtækið Hawkpoint til að vinna að samningagerð milli gömlu og nýju bankanna undir stjórn fulltrúa íslenskra stjórnvalda.

Verkefnið felst annars vegar í ráðgjöf vegna þeirra samninga sem þurfa að eiga sér stað á milli ríkisins fyrir hönd nýju bankanna og kröfuhafa þeirra gömlu í tengslum við uppgjör þeirra en hins vegar verður sérþekking fyrirtækisins nýtt til að skoða leiðir að uppgjörum bankanna.

Fjórum erlendum ráðgjafarfyrirtækjum var boðið að taka þátt í útboði vegna verkefnisins en tvö drógu sig í hlé vegna hagsmunatengsla, að því er segir á vef forsætisráðuneytis. - jab






Fleiri fréttir

Sjá meira


×