Golf

Kona flutt á spítala frá heimili Tiger Woods

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Það eru engir gleðidagar á Woods-heimilinu.
Það eru engir gleðidagar á Woods-heimilinu.

Dramatíkin í máli Tiger Woods ætlar engan enda að taka en í morgun var hringt í neyðarlínuna vegna konu á heimili Woods.

Hún ku hafa verið flutt á spítala þó svo hún hefði í fyrstu neitað að fara þangað. Var konan flutt á gjörgæsludeild.

Svarti jeppinn hans Tigers sást við spítalann þegar sjúkrabíllinn kom þangað.

Fréttir af málinu eru enn frekar óljósar en fjölmiðlar geta sér þess til að það hafi verið eiginkona Tigers, Elin Nordegren, sem hafi verið flutt á spítalann.

Það hefur þó ekki verið staðfest. Vísir mun flytja ykkur nánari tíðindi af málinu síðar í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×