Innlent

Holtavörðuheiði opnuð á nýjan leik

Ófært er um Eyrarfjall, Lágheiði, Hólasand, Fjarðarheiði og á Öxi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni

Á Vesturlandi er hálka og skafrenningur á Holtavörðuheiði sem hefur verið opnuð á nýjan leik en hann var lokað á áttunda tímanum í gærkvöldi. Hálkublettir eru á Fróðarheiði, Laxárdalsheiði og á Bröttubrekku.

Á Vestfjörðum er hálka á Steingrímsfjarðarheiði. Eyrarfjall er ófært. Þæfingsfærð er á Hrafnseyrarheiði og hálkublettir og éljagangur á Dynjandisheiði. Þæfingsfærð er á Klettsháls og á Ennisháls. Ófært er á veginum norður í Árneshrepp.

Á Norðurlandi er hálka á Þverárfjalli, Vatnsskarði og á Öxnadalsheiði. Snjóþekja er á Siglufjarðarvegi. Þá er ófært á Lágheiði og snjóþekja og hálka er í Eyjafirði.

Vetrarfærð er á Norðaustur- og Austurlandi. Hálka er á Víkurskarði og hálka og skafrenningur á Mývatnsheiði. Ófært er á Hólasandi. Þæfingsfærð er á Mývatns - og Möðrudalsöræfum. Þungfært er á Vopnafjarðarheiði og hálka og skafrenningur á Sandvíkurheiði.

Fjarðarheiði er ófær. Snjóþekja og skafrenningur er á Fagradal og hálkublettir á Oddskarði. Ófært er á Öxi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×