Formúla 1

Kristján Einar í eldlínunni á Spa

Krstiján Einar á fánum á Spa í dag.
Krstiján Einar á fánum á Spa í dag.

Kappaksturskappinn Kristján Einar Kristjánsson keppir á Spa brautinni í Belgíu um helgina í opnu evrópsku mótaröðinni. Keppt er í tveimur umferðum og varð Kristján í fimmta sæti í fyrstu umferðinni í dag.

Seinni umferðin er ekin á sunnudag á brautinni sem er notuð í Formúlu 1. Mótaröðin sem Krstiján keppir í kallast Opna evrópska Formúlu 3 mótaröðin, en hún var áður spænska Formúlu 3 mótaröðin. Mörg mótanna fara fram á Spáni og mun Kristján aka í nokkrum þeirra. Tuttugu og tveir ökumenn kepptu á Spa í dag og Kristján var áttundi á ráslínu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×