Valdís Þóra Jónsdóttir úr GL tryggði sér sigur í kvennaflokki á fyrsta stigamóti íslensku mótaraðarinnar sem lauk á Hólmsvelli í Leiru í dag. Valdís Þóra lék á 72 höggum í dag eða á pari og lauk því leik á 151 höggi eftir 36 holur.
Valdís Þóra lék á tveimur höggum færra en Ragna Björk Ólafsdóttir úr GK sem varð önnur eftir að hafa leikið á 77 höggum í dag. Ragna Björk spilaði holurnar 36 á 153 höggum.
Eygló Myrra Óskarsdóttir úr GO náði ekki að fylgja eftir góðum fyrsta degi og varð að sætta sig við þriðja sætið ásamt Ragnhildi Sigurðardóttur úr GR.
Lokastaðan á fyrsta stigamótinu:
1. Valdís Þóra Jónsdóttir, GL 151 (+7)
2. Ragna Björk Ólafsdóttir, GK 153 (+9)
3. Eygló Myrra Óskarsdóttir, GO 154 (+10)
3. Ragnhildur Sigurðardóttir, GR 154 (+10)
5. Ingunn Gunnarsdóttir, GKG 157 (+13)
6. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR 158 (+14)
7. Jódís Bóasdóttir, GK 162 (+18)
8. Nína Björk Geirsdóttir, GKJ 163 (+19)
9. Signý Arnórsdóttir, GK 164 (+20)
10. Karen Guðnadóttir, GS 165 (+21)
10. Þórdís Geirsdóttir, GK 165 (+21)
10. Ásta Birna Magnúsdóttir, GK 165 (+21)