Golf

Birgir Leifur á tveimur yfir í dag

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Birgir Leifur Hafþórsson lék á tveimur höggum yfir pari á opna-velska meistaramótinu í golfi í dag. Hann er samtals á pari vallarins.

Birgir lék fyrsta hringinn sinn á tveimur undir pari en það hallaði undan fæti hjá honum í dag. Birgir fékk fjóra skolla og tvo fugla í dag.

Allar líkur eru á því að Birgir komist í gegnum niðurskurðinn á mótinu. Birgir er í 45 sæti ásamt fleiri kylfingum eins og staðan er núna.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×