Fótbolti

Mörg stórlið hafa boðið í Ribery

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Franck Ribery í leik með Bayern München.
Franck Ribery í leik með Bayern München. Nordic Photos / Getty Images

Franck Ribery, leikmaður Bayern München, hefur greint frá því að mörg stórlið í Evrópu hafa gert félaginu tilboð í sig.

„Við höfum fengið tilboð frá Barcelona, Real Madrid, Chelsea og Manchester City," sagði Ribery. „En ég vil taka skýrt fram að ég hef aldrei reynt að koma mér frá Bayern München."

Haft var eftir honum í gær að hann og hans fjölskylda væru ánægð í München og að hann ætlaði sér að efna samning sinn við Bayern sem gildir til loka tímabilsins 2011.

Fyrr í vikunni sagði Franz Beckenbauer, forseti Bayern, að hann myndi ekki standa í vegi fyrir Ribery ef hann kysi að fara frá félaginu í sumar. Jürgen Klinsmann, knattspyrnustjóri liðsins, er hins vegar fullviss um að hann verði áfram hjá félaginu.

„Þessar fyrirspurnir sem við höfum fengið sýna hversu góður hann er," sagði Klinsmann. „Hann er ánægður hérna og ég er viss um að hann verði hjá okkur í langan tíma."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×