Innlent

Benedikt vill forystusæti í Norðausturkjördæmi

Benedikt Sigurðsson.
Benedikt Sigurðsson.

Benedikt telur að virkni hins almenna kjósanda í umræðunni síðustu mánuðina beri að túlka sem ákall eftir lýðræðisumbótum og að vaxandi þungi virðist vera í kröfunni um að stjórnmálamenn axli ábyrgð. Samfylkingin sé lýðræðislegur jafnaðarmannaflokkur og eigi ótvírætt að vera í fararbroddi siðbótar íslenskra stjórnmála. Því sé opið prófkjör hjá Samfylkingunni í kjördæminu sjálfsögð tilraun til að bjóða áhugafólki um félagshyggju og samfélagslegt réttlæti að taka þátt í endurnýjun forystusveitar flokksins í kjördæminu.

Aðgerðir fyrir heimilin

Benedikt segist hafa sérstaklega beitt sér í umræðunni um rekstrarskilyrði heimilanna og afleiðingar kreppuhrunsins fyrir fyrirtækin og heimilin.

„Það er algert forgangsmál að koma til móts við yngri fjölskyldurnar, sem fjárfest hafa í góðri trú. Skilvirkasta leiðin og sú sem kemur flestum fjölskyldum til góða er að færa niður höfuðstól lánanna sem nemur því yfirskoti sem vístala neysluverðs hefur bætt við höfuðstólinn frá 1. mars 2008. Jafnframt þarf að gera upp gengistryggð lán með samningsgengi. Þetta er óhjákvæmilegt að gera þar sem forsendur fyrir samningum almennra lántakenda við fjármálafyrirtækin hafa algerlega brostið. Bæði brugðust stjórnvöld skyldu sinni um að varðveita stöðugleika og fram hefur komið að viðskiptabankarnir markaðssettu lán með villandi hætti, í ljósi þess að þeir stunduðu á sama tíma áhættu, sem að lokum felldi allt fjármálakerfi okkar."

Aðild að ESB

Benedikt telur knýjandi að leita samninga við ESB og vill óska flýtiaðgangs að tengingu við evru eða fulla aðild að myntbandalaginu. „Það er hins vegar algerlega lífsnauðsynlegt fyrir atvinnureksturinn í landinu að keyra stýrivextina niður í 4-5% með miklum hraði. Jafnframt verðum við að afnema verðtryggingu og gera víðtækan sáttmála um að leggja verðbólguna að velli. Stöðugleiki gæti skapast mjög fljótt ef framtíðarsýnin er skýr og byggð á breiðu samkomulagi aðila í stjórnmálum og á vinnumarkaði."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×