Viðskipti innlent

Fyrrum forstjóri JJB Sports: Skuldar Kaupþingi 30 milljarða

Kaupþing. Mynd úr safni.
Kaupþing. Mynd úr safni.

Eignarhaldsfélag í eigu Chris Ronnie, fyrrum forstjóra JJB Sports, skuldaði Kaupþingi á Íslandi tæpa 30 milljarða þegar það fór á hausinn í janúar síðastliðnum.

Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar rannsakar nú meint samráð á milli JJB Sports og verslunarkeðjunnar Sports Direct International. Ennfremur er Chris sjálfur sérstaklega til rannsóknar vegna gruns um ólöglegan flutning á eignarhlut sínum í verslunarkeðjunni til Kaupþings, en þann hlut áttu Ronnie og Exista saman.

Þá er einnig verið að rannsaka falsaða risnureikninga, hugsanlegan þjófnað á eigum verslunarkeðjunnar og leka á upplýsingum úr bókhaldi hennar áður en milliuppgjör var birt í september 2008.

Chris Ronnie átti, ásamt Exista, 27 prósentu hlut í JJB Sports. Bréfin voru í eignarhaldsfélaginu Guro Leisure sem var fjármagnað með íslensku lánsfé en fór í þrot í janúar.

Hann notaði bréfin sem veð fyrir 190 milljóna punda láni sem hann tók hjá Kaupþingi. Kaupþing gerði síðan veðkall og yfirtók hlutabréfin í kjölfarið. Þegar þetta kom í ljós í mars síðastliðnum var Ronnie rekinn frá JJB.

Málið er rannsakað af fjórum mismunandi yfirvöldum í Bretlandi. Auk bresku efnahagsbrotadeildarinnar þá eru samkeppniseftirlitið, sérsveit á vegum bresku lögreglunnar sem rannsakar skipulagða glæpastarfsemi og svo tollgæslan.

Athygli vekur að sérsveit lögreglunnar rannsakar málið en hún hefur hingað til beint spjótum sínum að skipulögðum glæpum sem tengjast fíkniefnum, mansali og peningaþvætti hinna ýmsu mafíusamtaka.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×