Innlent

Framsalsgögnin komin - farið fram á gæsluvarðhald í dag

Breki Logason skrifar
Hosmany Ramos
Hosmany Ramos
Dómsmálaráðuneytinu hafa borist framsalsgögn frá brasilískum stjórnvöldum vegna lýtalæknisins Hosmany Ramos sem handtekinn var hér á landi um miðjan ágúst. Að sögn Hilmars Ingimundarsonar lögmanns Ramos verður gæsluvarðhalds krafist yfir honum síðar í dag. Ramos var dæmdur í 30 daga fangelsi þegar hann framvísaði vegabréfi bróður síns í Leifsstöð og lýkur afplánun þess dóms á morgun.

Skömmu eftir handtökuna var ljóst að brasilísk stjórnvöld myndu setja fram framsalsbeiðni vegna Ramos en gögnin hafa verið lengi á leið hingað til lands. Dómsmálaráðuneytið staðfesti hinsvegar í samtali við fréttastofu að þau væru nú komin.

Hosmany er á flótta frá Brasilíu eftir að hafa verið dæmdur í áratuga fangelsisvist þar í landi fyrir stórfelld fíkniefnamisferli og morðs á flugmanni sem starfaði fyrir hann við fíkniefnaflutning.

Sjálfur er Hosmany menntaður lýtalæknir og er óhætt að segja að hann sé einn þekktasti fangi Brasilíu. Hann hefur meðal annars skrifað bækur auk þess sem hann hefur gagnrýnt aðbúnað fanga þar í landi harðlega. Sjálfur segist hann óttast um líf sitt af þeim ástæðum.

Það er því spurning hvort Ramos verði framseldur til Brasilíu en engir framsalssamningar eru á milli Íslands og Brasilíu. Hilmar segir að ljóst sé að farið verið fram á gæsluvarðhald yfir Ramos vegna framsalsbeiðninnar, þeirri kröfu verði hinsvegar mætt af sinni hálfu og umbjóðanda síns í dómssölum síðar í dag.






Tengdar fréttir

Enn beðið eftir framsalsgögnum vegna Ramos

Smári Sigurðsson yfirmaður alþjóðadeildar Ríkislögreglustjóra segir að viðeigandi gögn vegna framsals á Brasilíska lýtalækninum Hosmany Ramos sem handtekinn var hér á landi hafi ekki enn borist. Yfirvöld í Brasilíu hafa staðfest að þau muni krefjast framsals á Ramos en hann var dæmdur í þrjátíu daga fangelsi hér á landi. Ramos mun losna úr haldi þann 11.september.

Brasilískur flóttamaður frjáls eftir viku

Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði kröfu lögreglustjórans í Reykjavík að brasilíski flóttamaðurinn Hosmany Ramos yrði úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir að hann lyki 30 daga afplánun sem hann hlaut fyrir að ferðast til Íslands á vegabréfi bróður síns.

Frægasti glæpamaður Brasilíu handtekinn á Íslandi

Einn þekktasti glæpamaður Brasilíu, lýtalæknirinn Hosmany Ramos, situr nú í gæsluvarðhaldi á Íslandi en hann var tekinn með falskt vegabréf á Keflavíkurflugvelli þann 9. ágúst. Hann er eftirlýstur í Brasilíu eftir að hafa fengið heimfararleyfi yfir jólahátíðina síðustu og ekki snúið aftur.

Brasilíski glæpamaðurinn sækir um hæli á Íslandi

Brasilíumaður sem handtekinn var á Leifsstöð fyrir helgi og er eftirlýstur fyrir margvíslega glæpi í heimlandi sínu, ætlar að fara fram á pólitískt hæli á Íslandi. Hann segist óttast um líf sitt í Brasilíu og biðlar til íslenskra stjórnvalda að sýna máli sýnu skilning.

Brasilískur dómsmálaráðherra vill til Íslands út af glæpamanni

Brasilíski dómsmálaráðherrann, Romeu Tuma Junior sagði í þarlendum fjölmiðlum að hann væri tilbúinn til þess að koma til Íslands ef það liðkaði fyrir framsali lýtalæknisins Hosmany Ramos sem var handtekinn á Leifsstöð fyrir um viku síðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×