Handbolti

Guðjón Valur með átta mörk

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Guðjón  Valur Sigurðsson.
Guðjón Valur Sigurðsson. Nordic Photos / Bongarts

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði átta mörk fyrir Rhein-Neckar Löwen sem vann góðan sigur á Hannover-Burgdorf á útivelli í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld, 34-24.

Snorri Steinn Guðjónsson skoraði tvö mörk fyrir liðið og Ólafur Stefánsson eitt. Hannes Jón Jónsson komst ekki á blað í liði Hannover-Burgdorf.

Þá vann Kiel sigur á Flensburg á úitvelli, 41-33. Aron Pálmarsson náði ekki að skora í leiknum fyrir Kiel. Alfreð Gíslason er þjálfari liðsins.

Alexander Petersson skoraði hins vegar tvö mörk fyrir Flensburg í leiknum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×