Að leggja sitt af mörkum
Árið 2008 var ríkissjóður rekinn með 216 milljarða halla og í ár stefnir hallinn, þrátt fyrir aukinn niðurskurð og tekjuöflun á miðju ári, í um 185 milljarða. Öllum má ljóst vera að við svo búið má ekki standa. Það verður að ná jöfnuði í ríkissbúskapnum á eins fáum árum og mögulegt er og stórdraga úr hallanum strax enda gerir fjárlagafrumvarpið ráð fyrir 95 milljarðar króna afkomubata frá yfirstandandi ári. Til þess að slíkt megi takast þarf mikið til: niðurskurð og sparnað útgjalda upp á 3,7% af vergri landsframleiðslu á gjaldahlið og nýja tekjuöflun upp á 3,2% af VLF á tekjuhlið. Er þá komið að lykilspurningunum:
1. Verður komist hjá aðgerðum af þessu tagi? Svarið er nei. Slíkur hallarekstur myndi, ef ekkert er að gert, sliga ríkissjóð og gera skuldastöðuna algjörlega óbærilega, - eða ósjálfbæra eins og nú er gjarnan sagt - á örfáum árum.
2. Er hægt að ná nauðsynlegum árangri með niðurskurði einum saman? Aftur er svarið nei. Slíkt myndi rústa velferðarkerfið og samneysluna og yrði auk þess efnahagslegt glapræði, sem myndi stórdýpka kreppuna.
3. Er hægt að ná þessum árangri eingöngu með nýrri tekjuöflun? Svarið er enn nei. Slíkt færi langt út fyrir þolmörk skattstofna og ofbyði greiðslugetu einstaklinga og atvinnulífs. Blandaðar aðgerðir, sparnaður og tekjuöflun, eru eina vitræna og færa leiðin, en um vægi hvors þáttar fyrir sig má vissulega rökræða sem og um hraða aðlögunnar.
Hverjir eiga þá að taka á sig auknar byrðar vegna tekjuöflunar samanber svörin hér að framan? Á það eingöngu að vera almenningur í gegnum beina og óbeina skatta eða á að leitast við að dreifa þessum byrðum sem víðast með það að markmiði að allir sem hafa til þess burði leggi sitt af mörkum. Ekki spillir fyrir ef hægt er að ná fram umbótum í skattkerfinu í leiðinni og þróa það í átt til framtíðar svo sem á sviði umhverfismála (grænir skattar) og ná fram alkunnum markmiðum um að þjóðin njóti sanngjarnar rentu eða arðs af auðlindum sínum.
Er þá loks komið að stóriðjufyrirtækjunum, eða stórnotendum orku. Er það til of mikils mælst að þau verði með í því að greiða eins og allir aðrir notendur orku í landinu lágt auðlindagjald sem tekið yrði í gegnum orkusöluna? Þetta vekur fleiri áhugaverðar spurningar:
a) Geta stóriðjufyrirtækin ekki lagt slíkt af mörkum til þess að hjálpa íslensku samfélagi og þjóðarbússkap á miklum erfiðleikatímum?
b) Væru til dæmis 20 til 30 aurar á kílówattsstund óbærileg hækkun á raforkuverði fyrir þau? Ekki getur það þá verið hátt fyrir.
c) Vilja stóriðjufyrirtækin ekki leggja sitt af mörkum þó þau geti það?
d) Hafa ekki stóriðjufyrirtækin, þau sem farin eru að greiða skatta á annað borð, notið góðs af mikilli lækkun tekjuskatts lögaðila undanfarin ár? Gæti árlegur hagnaður þeirra eftir skatta verið 2 til 3 milljörðum króna hærri nú vegna þess að þau greiða 15% tekjuskatt af hagnaði í stað til dæmis 30% eins og var fyrir nokkrum árum?
e) Getur verið að skattgreiðslur stóriðjufyrirtækjanna hér á landi hafi lækkað enn frekar við að skuldir við móðurfélög hafa komið í stað eigin fjár og vextir af þeim séu gjaldfærðir.
f) Getur verið að með gengislækkun krónunnar hafi launakostnaður stóriðjufyrirtækjanna lækkað um fleiri tugi milljóna dollara á ársgrundvelli miðað við það sem var áður en gengisfallið hófst á fyrri hluta árs 2008?
g) Hvaða boðskapur fælist í því að stóriðjufyrirtækin kæmu sér með öllu undan því að leggja nokkuð nýtt af mörkum til stuðnings samfélaginu á erfiðleikatímum, studd til þess af samtökum atvinnurekenda og jafnvel launamanna? – Að þau geti ekki borgað? – Að þau vilji ekki borga þó þau geti það? – Að tilvera þeirra hér sé grundvölluð á því að leggja eins lítið af mörkum til innlenda raunhagkerfisins og mögulegt er, nýta auðlindir þjóðarinnar í sína þágu án endurgjalds, og ætla öðrum, launafólki og innlendu atvinnulífi að axla enn þyngri byrðar í staðinn? - Því verður ekki trúað. Þvert á móti gengur undirritaður út frá því að stór og öflug útflutningsfyrirtæki, eins og stóriðjufyrirtækin eru, vilji leggja sitt af mörkum. Að sjálfsögðu er rétt og skylt að ræða málin við þau þegar til útfærslunnar kemur og er hér með boðið upp á slíkt.
Höfundur er fjármálaráðherra.
Skoðun
Styrkjum stöðu sjúkraliða fyrir betri heilbrigðisþjónustu
Sandra B. Franks skrifar
Sterk sveitarfélög skipta máli
Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar
Undirgefni, trúleysi og tómarúm
Einar Baldvin Árnason skrifar
Reistu hamingjunni heimili
Árni Sigurðsson skrifar
Það tapa allir á orkuskortinum
Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar
RÚV og litla vandamálið
Ásgeir Sigurðsson skrifar
ESB aðild eða fylki í USA, eða bara gamla Ísland og blessuð krónan?
Hilmar Þór Hilmarsson skrifar
Takk Björgvin Njáll, eða þannig
Ólafur Þór Ólafsson skrifar
Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
Aðför að réttindum verkafólks
Aðalsteinn Árni Baldursson skrifar
Orkuverð og sæstrengir
Anna Sofía Kristjánsdóttir skrifar
Veðurstofa Sjálfstæðisflokksins frestar fundi
Daníel Hjörvar Guðmundsson skrifar
Að þora að stíga skref
Magnús Þór Jónsson skrifar
Ísland er ekki stjórntækt með verðtryggingu?
Örn Karlsson skrifar
Ó Palestína
Arnar Eggert Thoroddsen skrifar
Er sjávarútvegur einkamál kvótakónga?
Finnbjörn A. Hermannsson skrifar
„Þetta er algerlega galið“
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
Hvernig getum við stigið upp úr sorginni?
Birna Guðný Björnsdóttir skrifar
Stórveldi eiga hagsmuni en ekki vini: Deilur tveggja NATO ríkja um Grænland
Hilmar Þór Hilmarsson skrifar
Vinnulag í rannsóknaverkefnum er ekki vísbending um stjórnarhætti þess sem borgar
Haraldur Ólafsson skrifar
Fersk fyrirheit: máttur nýársheita og skýrra markmiða
Árni Sigurðsson skrifar
Skilaboð hátíðarinnar
Skúli S. Ólafsson skrifar
Er þetta alvöru?
Bjarni Karlsson skrifar
Hugum að loftgæðum, heilsu og sjálfbærni um jólin – eigum loftgæða jól!
Heiða Mjöll Stefánsdóttir,Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir skrifar
Raforkunotkun gagnavera minnkað mikið
Tinna Traustadóttir skrifar
Gott knatthús veldur deilum
Stefán Már Gunnlaugsson skrifar
Göngum fyrir friði
Guttormur Þorsteinsson skrifar
Skammtatölvur: Framtíð tölvunarfræði og bylting í útreikningum
Sigvaldi Einarsson skrifar
Hamingjan sem leiðarljós menntakerfisins
Reynir Böðvarsson skrifar
Gagnaver auka hagkvæmni í fjarskiptum Íslands við umheiminn
Þorvarður Sveinsson skrifar