Viðskipti innlent

Sigurður Einarsson með stöðu grunaðs manns

Sigurður Einarsson
Sigurður Einarsson

Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, er með réttarstöðu grunaðs manns í rannsókn sérstaks saksóknara á kaupum Katarbúans Al-Thani á rúmlega fimm prósent hlut í bankanum. Breska blaðið Guardian greinir frá því í dag.

Blaðið segir að Sigurður, sem býr í Chelsea-hverfinu, einu flottasta hverfi London, sé fyrsti stjórnandi banka í Evrópu sem fær slíka stöðu.

Greint er frá því að meðal þeirra sem liggja einnig undir grun séu Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri bankans, Ólafur Ólafsson, næststærsti hluthafi bankans, og lögmaðurinn Telma Halldórsdóttir, sem sat í stjórn Q Finance Holding, félags Al-Thani sem hélt utan um hlut hans í Kaupþingi.

Þá greinir Guardian frá því að Halldór Bjarkar Lúðvígsson, sem starfaði áður í lánadeild Kaupþings en hefur nú umsjón með norrænum eignum bankans fyrir kröfuhafa, sé einnig á listanum yfir grunaða. Það sé frekar neyðarlegt fyrir skilanefnd bankans þótt stöðu Halldórs Bjarka gæti seinna verið breytt í vitni.


Tengdar fréttir

Rannsóknin snýr að 25 milljarða kaupum Al-Thani

Rannsókn sérstaks saksóknarar sem greint er frá hér á síðunni og leitt hefur af sér tug af húsleitum snýst um 25 milljarða kr. kaup Sheik Mohammed Bin Khalifa Al-Thani frá Qatar á 5% hlut í Kaupþingi. Kaupin áttu sér stað skömmu fyrir fall Kaupþings s.l. haust og hafa töluverðir eftirmálar orðið síðan.

Vissi ekki um lán til Al-Thani

Lýður Guðmundsson, stjórnarformaður Existu og fyrrum stjórnarmaður í Kaupþingi, segir að hann hafi ekki vitað um lán Kaupþings til Sjeiks Mohameds bin Khalifa Al-Thani.

Ólafur Ólafsson: Græddi ekki krónu á viðskiptum Al-Thani

Ólafur Ólafsson fjárfestir segir engar þóknanir, greiðslur eða hagnað hafa fallið í sinn hlut við kaup Mohammed Sheik bin Khalifa Al-Thani á 5% hlut í Kaupþingi. Í yfirlýsingu sem hann sendir frá sér vagna málsins segir hann mikilvægt að skýrsla sem Price Waterhouse Coopers hefur unnið um starfsemi Kaupþings verði birt í heild sinni þannig að allur sannleikurinn komi í ljós og staðfesti það sem hann segi.

Sérstakur saksóknari: Vill yfirheyra Al Thani

Ólafur Þór Hauksson, sérstakur sakskóknari, vill yfirheyra Sjeik Al Thani vegna kaupa hans á hlutabréfum í Kaupþingi. Grunur leikur á að kaupin hafi verið sýndarviðskipti.

Dreginn í svaðið sem fjárglæframaður

Ég hef verið dreginn inn í svaðið sem fjárglæframaður segir Ólafur Ólafsson en lán fyrir kaupum hins konungsborna Al-Thani frá Katar á tuttugu og fimm milljarða króna hlut í Kaupþingi fór í gegnum félag í eigu Ólafs á Jómfrúareyjunum. Íslensku bankarnir voru rændir innan frá, segir formaður félags fjárfesta.

Margt bendir til blekkinga

Það er margt sem bendir til þess að hér á landi hafi átt sér stað sýndarviðskipti og blekkingarleikur til að halda uppi verði á bréfum fyrirtækja, segir viðskiptaráðherra. Með því hafi markaðsaðilar og stjórnvöld verið blekkt.

Segir ekkert óeðlilegt við viðskipti Al-Thani

Sigurður Einarsson fyrrum stjórnarformaður Kaupþings hf segir ekkert óeðlilegt við viðskipti Sheikh Mohammed bin Khalifa Al-Thani á rúmlega 5% hlut í bankanum. Mikil umræða hefur verið um kaupin síðustu daga og segist Sigurður fagna þeim rannsóknum sem nú standa yfir og snúa að bankanum.

Leitað í sumarhúsi Ólafs Ólafssonar

Húsleit var gerð í sumarhúsi Ólafs Ólafssonar í Miðhrauni á Snæfellsnesi í tengslum við rannsókn á kaupum Al Thani á hlut í Kaupþingi. Þá var einnig gerð húsleit á heimili Ólafs og tveimur fyrirtækjum í hans eigu.

Al Thani fjölskyldan áður í vafasömum viðskiptum

Al Thani fjölskyldan hefur áður verið rannsökuð fyrir vafasöm viðskipti. Fjölskyldan kom við sögu í einu mesta spillingarmáli Bretlands en málið tengist rannsókn á vopnaframleiðandanum BAE.

Mikil leynd yfir rannsókninni á Al Thani kaupunum

Ólafur Þór Hauksson sérstakur saksóknari um bankahrunið segir að rannsókn á kaupum sjeiksins Al Thani á 5% hlut í Kaupþingi hafi ekki hafist með húsleitum á föstudaginn. Rannsóknin hafi staðið lengi yfir og slóð peninga sé ekki svo auðveldlega afmáð. Hann vill lítið gefa upp um næstu skref sem hann segir geta skaðað rannsóknina. Hann segir þó að á næstu dögum verði ákveðið hvort gögnum verði skilað aftur eða þau haldlögð í lengri tíma.

Óttaðist að yfirheyrslur færu á netið

Sérstakur saksóknari bankahrunsins óttaðist yfirheyrslur yfir vitnum á hljóð og mynddiskum í Q-Finance málinu, kynnu að berast á netið, fengju verjendur grunaðra þau í hendur.

Segir milljarðana frá Al-Thani hafa lent á Caymaneyjum

Guðmundur Ólafsson hagfræðingur segist hafa heimildir fyrir því að þeir 25 milljarðar kr. sem Sheik Al Thani greiddi fyrir hlutabréf sín í Kaupþingi hafi verið sendir til Caymaneyja í gegnum Kaupþing í Lúxemborg.

Fulltrúi Al-Thani: Undrast að kvittun finnist ekki

Telma Halldórsdóttir, stjórnarmaður í fjárfestingarfélaginu Q Iceland Finance, undrast frétt Ríkissjónvarpsins í kvöld þar sem fullyrt var að yfirvöld hér á landi skoði nú hvort tugmilljarða kaup fjárfesta frá Katar á hlutabréfum í Kaupþingi síðasta haust hafi verið blekking. ,,Ég skil ekki að þeir finni ekki umræddar kvittanir." Ekki var haft samband við Telmu vegna fréttar RÚV.

Forstjóri FME sannfærður um markaðsmisnotkun

Forstjóri Fjármálaeftirlitsins er sannfærður um að um markaðsmisnotkun sé að ræða í nokkrum málum sem send hafa verið til sérstaks saksóknara. Fleiri stór og alvarleg mál séu á leið þangað.

Ekki búið að yfirheyra Ólaf Ólafsson

Húsleit fór fram á heimilum fyrrverandi stjórnenda Kaupþings og í bankanum á vegum sérstaks sakskóknara í tengslum við rannsókn á kaupum eignarhaldsfélags sjeiksins Al Thani á 5% hlut í Kaupþingi. Ólafur Ólafsson, sem var um tíma annar stærsti eigandi Kaupþings og hafði milligöngu um viðskiptin, hefur ekki verið yfirheyrður.

Al-Thani lítur á fjárfestingu sína í Kaupþingi sem glatað fé

Sheik Mohammed Bin Khalifa Al-Thani lítur á 25,5 milljarða kr. fjárfestingu sína í Kaupþingi sem glatað fé. Að sögn Telmu Halldórsdóttur talsmanns Q Iceland Finance mun Al-Thani hafa greitt fyrir 5% eignarhlut sinn í Kaupþingi með reiðufé og mjög tryggum veðum í eignum sínum erlendis.

Ekkert um Al Thani í lánayfirliti Kaupþings

Ekkert finnst um lán Kaupþings til sjeiksins Al Thanis frá Katar í lányfirliti bankans sem lekið var á netið fyrir skömmu. Eignarhaldsfélag hans keypti hlut í bankanum undir lok september í fyrra fyrir tuttugu og fimm milljarða króna. Þar með varð hann þriðji stærsti hluthafi Kaupþings.

Kaupþing tapaði 37,5 milljörðum á kaupum Al-Thani

Kaup hins konungsborna Al-Thani frá Katar á tuttugu og fimm milljarða króna hlut í Kaupþingi kostuðu bankann sjálfan 37,5 milljarða. Hvorki Al-Thani né vinur hans Ólafur Ólafsson, einn stærsti hluthafi Kaupþings, sem lánaði honum tólf og hálfan milljarð fyrir kaupunum, töpuðu krónu.

Búist við að fleiri fái stöðu grunaðra

Úttekt á kaupum Al Thani á 5% hlut í Kaupþingi er að finna í skýrslu endurskoðunarfyrirtækisins Price Waterhouse Coopers um starfsemi bankans. Fjármálaeftirlitið hafði málið á sínu borði í tæpt hálft ár. Búist er við að fleiri heldur en færri muni fá stöðu grunaðra í rannsókn sérstaks saksóknara á kaupunum.

Hefur þurft að handtaka grunaða

Sérstakur saksóknari vegna bankahrunsins hefur þurft að handtaka menn sem grunaðir eru í rannsóknum tengdum bankahruninu. Ekki fæst uppgefið hverja þurfti að handtaka, eða hvers vegna. Hinum handteknu var sleppt að yfirheyrslu lokinni. Embættið er með yfir tuttugu mál til rannsóknar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×