Innlent

Mun ekki brjóta trúnað og birta í Morgunblaðinu

Davíð Oddsson á fundi rannsóknarnefndar.
Davíð Oddsson á fundi rannsóknarnefndar.

Davíð Oddsson, nýr ritstjóri Morgunblaðsins, sagði í viðtali við Sölva Tryggvason á Skjá Einum nú í kvöld, að hann myndi ekki rjúfa trúnað við rannsóknarnefnd Alþingis vegna bankahrunsins.

Sjálfur sagðist hann hafa gefið tvívegis skýrslu á fundi nefndarinnar. Í bæði skiptin sat hann í sjö tíma á fundum hennar. Hann útilokaði ekki að hann mætti tjá sig um það sem fram kom á fundum nefndarinnar eftir að hún hefur skilað af sér skýrslu um bankahrunið.

Þá sagði Davíð einnig að ekki væri búið að ákveða neinar breytingar á áherslum Morgunblaðsins. Hann tók þó fram að vilji eigenda yrði virtur og eflaust yrðu einhverjar áherslubreytingar á blaðinu.

Davíð var ráðinn ritstjóri blaðsins auk Haraldar Johannessen í gær. Að sögn Davíðs hefur hann mætt hlýhug starfsmanna Árvakurs sem þurftu að þola uppsagnir í gær. Alls var um fjörtíu manns sagt upp. Hann ítrekaði að hann væri með hæfileikaríkt fólk sér við hlið.

Aðspurður um ummæli Baugsfeðga varðandi ráðningu hans sem ritstjóra, sem meðal annars mátti lesa á Vísi í gær og DV, sagðist Davíð ekkert hafa um það að segja annað en að gagnrýni þeirra kæmu úr hörðustu átt. Enda er Jón Ásgeir Jóhannesson aðaleigandi Fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis auk Fréttablaðsins. Þá á Hreinn Loftsson DV.

Mikil viðskiptatengsl hafa verið á milli Hreins og Baugsfeðga í gegnum tíðina.

Davíð sagðist einnig í viðtali hafa íhugað að snúa aftur í stjórnmál. Úr því varð þó ekki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×