Viðskipti innlent

Með flota glæsibíla í Lúxemborg

Hátt í tíu glæsibifreiðar eyrnamerktar vildarvinum Landsbankans voru geymdar í bílageymslu á vegum útibús bankans í Lúxemborg og sá bankinn um fjármögnun þeirra að einhverju leyti.

Mikil leynd hvílir yfir bílunum en Markaðurinn hefur þó heimildir frá fyrstu hendi um málið. Ekki liggur fyrir hvort bankinn keypti bílana eða tók þá á rekstrarleigu og nýtti sér skattalegt hagræði af viðskiptunum með svipuðum hætti og þegar hann tók bíla á leigu fyrir almenna starfsmenn bankans. Bílarnir í geymslunni voru ekki allir skrifaðir á bankann. Nokkrir voru geymdir þar fyrir vildarviðskiptavini, sem höfðu keypt þá í eigin reikning.

Í einhverjum tilvikum áttu forsvarsmenn Landsbankans í Lúxemborg frumkvæðið að því að kaupa bílana fyrir viðskiptavini sína. Hver bíll var eyrnamerktur tilteknum viðskiptavini og var hann eini notandi hans.

Þjónusta bankans fólst í því að viðskiptavinir lögðu fram eina til 1,5 milljónir evra í bankann. Bankinn keypti bíl í samræmi við óskir vildarviðskiptavinarins, sem greiddi leigu af bílnum.

Samkvæmt heimildum Markaðarins sá starfsmaður á vegum bankans um að aka bílunum hvert sem var á meginlandi Evrópu, allt eftir því hvar eigendur bílanna voru staddir hverju sinni og gátu þeir gengið þar að bílunum vísum.

Eftir því sem næst verður komist var Ascari-akstursbrautin í nágrenni Sevilla á Spáni vinsæll áfangastaður íslenskra auðjöfra sem áttu bíla í geymslu Landsbankans.

Erfitt er að áætla verðmæti bílaflotans. Þar voru meðal annars Bugatti Veyron, sem er með dýrustu bílum í heimi. Einn Bugatti kostar frá einni til 1,5 milljóna evra, jafnvirði allt að 200 milljóna íslenskra króna. - jab






Fleiri fréttir

Sjá meira


×