Verður líklegast fyrsti samkynhneigði forsætisráðherrann Jón Hákon Halldórsson skrifar 27. janúar 2009 13:00
Fari svo að Jóhanna Sigurðardóttir verði forsætisráðherra í nýrri ríkisstjórn verður hún líklegast fyrsti samkynhneigði forsætisráðherrann í heiminum. Maki Jóhönnu er Jónína Leósdóttir blaðamaður samkvæmt upplýsingum á vef Alþingis. „Við munum ekki eftir neinum öðrum samkynhneigðum forsætisráðherra svona í fljótu bragði," segir Lárus Ari Knútsson, framkvæmdastjóri Samtakanna ´78, sem eru hagsmunasamtök hinsegin fólks á Íslandi. Lárus segir að Samtökin ´78 séu þverpólitísks eðlis og taki málefni fram yfir dægurþras stjórnmálanna. „Það er auðvitað ánægjulegt að sjá að ekki er spurt að kynhneigð þegar skipað er í æðstu embætti þjóðarinnar," segir Lárus. „Þetta kemur svo sem ekkert á óvart þar sem að íslensk löggjöf um réttindi samkynhneigðra er á meðal þeirra framsæknustu í heiminum," segir Lárus. Hann segir að enn eigi þó eftir að bæta réttindastöðu transgenders fólks á Íslandi auk þess sem að Samtökin ´78 hafi barist fyrir því að einungis verði ein hjúskaparlöggjöf í landinu sem gildi jafnt fyrir gagn- og samkynhneigða. Eins og fram hefur komið verður Jóhanna jafnframt fyrsta konan til að gegna embætti forsætisráðherra á Íslandi.
Tengdar fréttir Jóhanna yrði fyrsti kvenforsætisráðherrann Fari svo að Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, leiði ríkisstjórn í minnihlutasamstarfi við Vinstri hreyfinguna - grænt framboð verður hún fyrst íslenskra kvenna til að gegna starfi forsætisráðherra. 26. janúar 2009 17:00 Mest lesið Vaktin: Eldgos hafið nærri Grindavík Innlent Vefmyndavél Vísis á Reykjanesskaganum Innlent Þreyttur á áreiti og selur Tesluna fyrir slikk Innlent Samþykki annarra verði ekki lengur skilyrði fyrir hunda- og kattahaldi Innlent Regnbogafánar bannaðir í skólum og ríkisstofnunum Erlent Gestir vaktir og Bláa lónið rýmt í snatri Innlent Færri ánægðir með Trump og efnahagsmálin Erlent Síður með ofbeldi barna spretti upp eins og gorkúlur Innlent Stór hópur fullorðins fólks á Íslandi lifir eins og börn Innlent Orkuveitan vill reisa fimmtán vindmyllur Innlent Fleiri fréttir Vonast til að hefja störf í Grindavík strax á morgun Sterkari merki en fyrir síðustu eldgos Bein útsending: Ræða skýrslu fjármálastöðugleikanefndar Gestir vaktir og Bláa lónið rýmt í snatri Vaktin: Eldgos hafið nærri Grindavík Þreyttur á áreiti og selur Tesluna fyrir slikk Samþykki annarra verði ekki lengur skilyrði fyrir hunda- og kattahaldi Tók upp hníf eftir útistöður við mann á hóteli Síður með ofbeldi barna spretti upp eins og gorkúlur Orkuveitan vill reisa fimmtán vindmyllur Nemendur Vallaskóla í þremur fyrstu sætunum í Stóru upplestrarkeppninni Ætla að bæta þjónustu en störfum fækki í einhverjum tilvikum Nýtt gervigreindaræði vekur upp spurningar um höfundarétt Taka fyrir afnám réttinda grásleppusjómanna Fyrstu hundrað dagar ríkisstjórnarinnar og gervigreindaræði Efling ungmennastarfs í Breiðholti meðal aðgerða „Allt að því hroki eða yfirlæti“ að tala um reynsluleysi „Hér er verið að saka fólk um alvarlega þætti“ Banaslys á Suðurlandsvegi eftir grjóthrun Skipar stýrihóp um áfengis- og vímuefnameðferð „Ég vil að þú sért alltaf með farða, annars sjást bólurnar þínar“ Vilja úthýsa einkaþotum og þyrlum Hvetja landsmenn til að búa sig undir neyðarástand Björn hvergi af baki dottinn Sjór gekk yfir fjárhús í Vík og allt á floti Suðurlandsvegi lokað vegna alvarlegs slyss Hveitibrauðsdögunum lokið: Ríkisstjórnin pólitískt stórtækari en von var á Menningarslys verði frumvarpið samþykkt Spyr um ábyrgð skólastjóra í stóra skómálinu Segir ÍR að slökkva á skiltinu Sjá meira
Jóhanna yrði fyrsti kvenforsætisráðherrann Fari svo að Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, leiði ríkisstjórn í minnihlutasamstarfi við Vinstri hreyfinguna - grænt framboð verður hún fyrst íslenskra kvenna til að gegna starfi forsætisráðherra. 26. janúar 2009 17:00