Formúla 1

Torro Rosso ræður tvítugan ökumann

Sebastian Buemi tekur sæti Sebastian Vettel hjá Torro Rosso, en það er óljóst hvort Sebastian Bourdais verður áfram hjá liðinu.
Sebastian Buemi tekur sæti Sebastian Vettel hjá Torro Rosso, en það er óljóst hvort Sebastian Bourdais verður áfram hjá liðinu. Mynd: Getty Images

Torro Rosso staðfesti í dag tvítugan ökumann sem keppenda hjá liðinu 2009. Það er Sebastian Buemi sem hefur verið þróunarökumaður Red Bull.

Torro Rosso menn hafa ekki enn afráðið hvaða ökumaður verður með Buemi, en nokkrir koma til greina. Sebastian Bourdais bíður þess hvort hann fær starf áfram hjá liðinu, en Sebastian Vettel hefur verið ráðinn hjá Red Bull.

Buemi keppti í GP 2 mótaröðinni í fyrra og er fyrstu svissneski ökumaðurinn í Formúlu 1 í áratugi.

Sjá nánar








Fleiri fréttir

Sjá meira


×