Enski boltinn

Crouch á leið til Þýskalands?

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Peter Crouch fagnar marki í leik með Portsmouth.
Peter Crouch fagnar marki í leik með Portsmouth. Nordic Photos / Getty Images

Svo gæti farið að framherjinn stóri, Peter Crouch, leiki með Þýskalandsmeisturum Wolfsburg á næstu leiktíð.

Crouch hefur síðustu daga vakið athygli með ummælum sínum um hugsanlegri yfirtöku fjárfesta frá miðausturlöndum á Portsmouth, þar sem Crouch er á mála nú.

Hann var orðaður við Manchester City í vikunni en umboðsmaður hans segir að það komi vel til greina að hann fari til Þýskalands.

„Hvað mig varðar þá finnst mér þetta spennandi kostur fyrir Peter Crouch," sagði umboðsmaðurinn við þýska fjölmiðla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×